Íþróttamiðstöðin í Reykholti
Fréttir
22.09.2011
Tækjasalur
Laugardaginn 24. sept. n.k. verður Halla Heimisdóttir, einkaþjálfari, í tækjasalum til að gefa góð ráð varðandi þrektækin. Það eru Ungmennafélag Biskupstungna og Kvenfélag Biskupstungna ásamt Íþróttamiðstöðinni sem standa að komu Höllu og vilja þessir aðilar hvetja alla þá sem áhuga hafa á bættri heilsu að mæta.
13:00 Þreksalur - Kennsla á þrektækin, kynning á mismunandi styrktarprógrömmum ofl.
14:30 Fyrirlestur um mataræði og næringu. Halla mun svara spurningum um allt það sem fólki liggur á hjarta.
15:00 Ketilbjöllur- kynning og létt æfing
Síðan ætlar íþróttamiðstöðin að standa fyrir hvatningarleik í okt sem verður auglýstur síðar með dreifibréfi.
Allir velkomnir
Ungmennafélag Biskupstungna
Kvenfélag Biskupstungna
Íþróttamiðstöðin í Reykholti