Íbúð til úthlutunar

Fréttir 02.01.2023
Laus er til umsóknar leiguíbúð fyrir aldraða í Reykholti. Um er að ræða 43,8 fermetra íbúð í Kistuholti. Um úthlutun íbúðarinnar gilda reglur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um félagslegt leiguhúsnæði. Reglurnar eru aðgengilegar á vef Skóla- og velferðarþjónustunnar, www.arnesthing.is. Umsókn skal senda á netfangið blaskogabyggd@blaskogabyggd.is eða skila henni á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu. Umsóknarfrestur er til 20. janúar n.k.