Hvítárbrú. Brúarvígsla föstudaginn 9. september 2011
Fréttir
06.09.2011
Brúarvígsla og stefnumót sveitunga
Föstudaginn 9. september munu vegamálastjóri og innanríkisráðherra standa fyrir formlegri vígslu á Hvítárbrú og verður klippt á borðann klukkan 15:00.
Í tilefni af þessum merkisviðburði ætla heimamenn beggja vegna brúarinnar að gera sér glaðan dag og hittast.
Íbúar í Hrunamannahreppi og Bláskógabyggð eru hvattir til að ganga á móti hver öðrum og mætast á brúnni.
Kvenfélagskonur munu klæðast þjóðbúningum og eru allar konur sem þá eiga hvattar til að mæta uppábúnar.
Félagar í Karlakór Hreppamanna taka lagið á brúnni að lokinni vígslu.
Sveitungar eru hvattir til að taka þátt og koma að brúnni gangandi, skokkandi, ríðandi eða jafnvel á gömlum bílum.
Á eftir er upplagt að heimsækja vini í nágrannasveit eða bregða sér á næsta veitingastað þar sem án efa verða brúartilboð í tilefni dagsins.
Brúarhlaup
Í tilefni dagsins verður boðið upp á ?Brúarskokk? fyrir börn. Ræst verður kl. 14.15 á tveimur stöðum, annars vegar í Hrunamannahreppi og hins vegar í Biskupstungum og skokkað að brúnni á undan vígslunni.
Þetta verður stutt skemmtiskokk og þeir sem hafa áhuga á að hlaupa mæta einfaldlega á staðinn.
Hlaupið verður ræst á tveimur stöðum í einu, í fyrsta lagi við afleggjarann við Galtalæk og í öðru lagi við hringtorgið á Flúðum.
Lengd hlaupsins er 2,1 km. en endað verður á miðri brú.
Allir sem áhuga hafa á að taka þátt í hlaupinu þurfa að mæta kl 14:00 við afleggjarann á Galtalæk og við hringtorgið á Flúðum.
Hlaupið verður ræst kl. 14:15.
Vonast til að sem flestir komi og taki þátt í hlaupinu.
Veitt verða verðlaun fyrir þátttökuna.
Ef einhverjar spurningar vakna er um að gera að hafa samband.
Helgi Kjartansson og Árni Hilmarsson
Með kveðju
Atvinnu- ferða- og menningarmálnefndir Hrunamannahrepps og Bláskógabyggðar, Kvenfélög og Ungmennafélög Biskupstungna og Hrunamanna.
Björgunarsveitirnar beggja vegna brúar og ferðamálafulltrúi.