Húsaleigubætur
Fréttir
11.01.2012
Fjárhæðir húsaleigubóta verða sömu og grunnfjárhæðir sem ákveðnar eru í reglugerð frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu.
Umsóknir með fullnægjandi gögnum sem berast í síðasta lagi 16. dag mánaðarins,verða afgreiddar í sama mánuði, en umsóknir sem berast síðar, verða afgreiddar í
næsta mánuði á eftir.
Húsaleigubæturnar greiðast mánaðarlega þann 1. hvers mánaðar eða næsta virkan dag þar á eftir vegna næsta mánaðar á undan og verða þær lagðar inn á bankareikning viðkomandi bótaþega.
Skilyrði fyrir rétti til húsaleigubóta eru m.a. að húsaleigusamningur sé gerður á staðfest eyðublað og að hann sé þinglýstur, nema þegar um íbúðir í eigu
sveitarfélagsins er að ræða. Húsaleigusamningur má ekki vera til styttri tíma en sex mánaða. Leggja þarf fram staðfest afrit af skattframtali, launa/tekjuseðla síðustu
þriggja mánaða og staðfestingu frá skóla um nám ef það á við.
Réttur til húsaleigubóta skapast ekki m.a. ef leigt er hjá nánum ættingja, ef einhver sem býr í sömu íbúð nýtur vaxtabóta eða ef ekki er sérsnyrting og séreldhús í
viðkomandi húsnæði. Ath. þó ákvæði um húsnæði námsmanna og sambýli fatlaðra.
Ýmis önnur skilyrði eru fyrir greiðslu húsaleigubóta, vinsamlegast kynnið ykkur þau frekar hjá starfsmönnum á skrifstofu Bláskógabyggðar og fáið afrit af reglugerð um
húsaleigubætur.
Úrskurður um rétt til húsaleigubóta gildir aðeins fyrir eitt almanaksár í senn.
Umsóknir þurfa að berast til skrifstofu Bláskógabyggðar fyrir 16. janúar 2012.
Sveitarstjóri Bláskógabyggðar,
Valtýr Valtýsson