Hreinsunardagur í Bláskógabyggð
Fréttir
18.06.2010
Hreinsunardagur var í Bláskógabyggð 15. júní 2010 og var grillað á eftir. Fólk streymdi út og margir tóku til í kringum sig og á stöðum sem þeir höfðu tekið eftir að rusl væri. Vinnuskólinn hefur verið duglegur að gera fínt í Reykholti og nágrenni. Slátturteymið stendur sig vel svo við getum öll verið hreykin af umhverfi okkar. Þjóðhátíðardagurinn mun skarta sínu fegursta, fallegt veður og hreint umhverfi.