Hóf til heiðurs íþróttafólki Bláskógabyggðar

Fréttir 10.01.2017
Laugardaginn 14. janúar n.k. verða þeir sem skarað hafa fram úr á sviði íþrótta á liðnu ári heiðraðir. Einstaklingar sem urðu íslandsmeistarar, bikarmeistarar eða voru valdir í landslið fá viðurkenningu ásamt því að íþróttamaður ársins í Bláskógabyggð verður útnefndur. Hófið, sem hefst kl 14:00, verður haldið í Aratungu og eru allir hvattir til að koma og heiðra okkar frábæra íþróttafólk með nærveru sinni og þiggja léttar kaffiveitingar.   Æskulýðsnefnd Bláskógabyggðar.