Hjólað í vinnuna

Fréttir 25.05.2009
Fræðslu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ísland á iði, stendur fyrir ,,Hjólað í vinnuna", heilbrigðri fyrirtækjakeppni um allt land dagana 6. - 26. maí. Meginmarkmið ,, Hjólað í vinnuna" er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Starfsmenn Bláskógabygðar hjá Íþróttamiðstöðinni í Reykholti láta sitt ekki eftir liggja. ?Starfið kallar á að maður sýni fordæmi? sagði Pétur forstöðumaður.