Gjöld vegna leikskóla og frístundar

Fréttir 30.03.2020
Vegna áhrifa COVID-19 á skipulag leikskóla og frístundar hefur sveitarstjórn samþykkt að gjöld vegna leikskóla og frístundar verði ekki innheimt með hefðbundum hætti. Ekki verður innheimt fyrir frístund þá daga sem lokað er. Ekki verður innheimt fyrir leikskóla þegar börn eru heima vegna veikinda, sóttkvíar eða ákvörðunar foreldra, enda séu fjarvistir vegna þessa ávallt í heilum vikum. Ekki verður innheimt fyrir þann tíma á leikskólum sem þjónusta er skert. Reikningar verða ekki sendir út 1. apríl, heldur verður innheimt eftir á í apríl, maí og júní skv. framangeindum reglum. Inneign sem myndast vegna mars verður nýtt til frádráttar síðar.