Gísli á Uppsölum á lofti Gamla-bankans á Selfossi föstudaginn 9. des. n.k. kl. 20:00

Fréttir 14.11.2016
Einleikurinn ?Gísli á Uppsölum? verður sýndur á lofti Gamla-bankans á Selfossi að Austurvegi 21, föstudaginn 9. des. n.k. kl. 20:00.  Sýningin er samin af þeim Elfari Loga Hannessyni og Þresti Leó Gunnarssyni, en Elfar leikur. Elfar hefur samið og leikið í fjölda leikverka má þar nefna verðlaunaleikinn Gísli Súrsson og Gretti.   Boðið verður uppá umræður að sýningu lokinni um sýninguna og efni hennar.     Miðaverð er 3500 kr. Þeir sem vilja tryggja sér miða geta gert það með því að hringja í síma 894-1275 milli 8:00 og 10:00 á kvöldin eða sent tölvupóst á netfangið komedia@komedia.is    Húsið mun opna kl. 19:30 og gengið er inn að norðanverðu.