Gatnagerð

Fréttir 26.03.2024

Borgarrimi 3. áfangi.

Mánudaginn 26. mars voru opnuð tilboð í verkið ,,Borgarrimi áfangi 3“ um er að ræða gatnagerð í nýju íbúðahverfi í Reykholti. Helstu verkþættir eru jarðvegsskipti á götustæðum,lagning styrktarlags, vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu Tilboð bárust frá níu aðilum.

Fögrusteinar ehf áttu lægsta boð, 65.562.380 kr. nam það 89% af kostnaðaráætlun 73.390.900 kr.

Verkinu skal að fullu lokið 1. október næstkomandi.