Fyrsta ljósleiðaratengingin

Fréttir 21.07.2020
Lagning ljósleiðara í Bláskógabyggð gengur vel en fyrsti viðskiptavinur Bláskógaljóss var tengdur 17. júlí. Það var skemmtileg tilviljun að sá fyrsti til að tengjast var Sigurður Þorsteinsson elsti íbúi Bláskógabyggðar, en Sigurður er 96 ára. Í tilefni af ljósleiðaratengingunni afhenti Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, Sigurði blómvönd. Með á myndinni er Hannes Arnar Viðarsson, tæknimaður hjá TRS.