Fyrirlestur um táknrænt gildi Gullfoss í íslenskri náttúrusýn

Fréttir 23.05.2011
Á slóðum Sigríðar í Brattholti Táknrænt gildi Gullfoss í íslenskri náttúrusýn er umfjöllunarefni næsta viðburðar Upplits, menningarklasa uppsveita Árnessýslu, sunnudagskvöldið 29. maí kl. 20.00. Segja má að staðarvalið sé táknrænt ? en viðburðurinn fer fram á Hótel Gullfossi í Brattholti og það er Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur sem flytur fyrirlestur. Hvernig blandaðist Gullfoss inn í fossamálin í byrjun 20. aldar? Um hvað snerist ?fossmálið? og af hverju lifir það í sögunni? Hvers vegna skrifaði Sigríður í Brattholti forseta Íslands bréf? Hver er saga hugmynda um nýtingu eða verndun Gullfoss? Hvaða sess skipar Gullfoss í íslenskri náttúrusýn í dag? Um þessi atriði og fleiri verður fjallað í fyrirlestri Unnar Birnu um Gullfoss í umræðu um virkjanir frá því upp úr aldamótunum 1900 og fram til þessa dags. Sjónum verður beint að táknrænu gildi fossins og þætti Sigríðar í Brattholti í að móta þá sögu. Erindið byggist á nýlegri doktorsritgerð Unnar Birnu í sagnfræði sem út kom hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi árið 2010 með titlinum, ?Þar sem fossarnir falla?. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.