Frumkvöðladagur Uppsveitanna
Fréttir
03.03.2015
Verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00-17:00
Dagurinn er haldinn í samstarfi sveitarfélaganna í Uppsveitum Árnessýslu
og markmiðið er að stuðla að nýsköpun og hvetja hugmyndaríkt fólk til dáða.
Hugað verður að því hvernig má komast frá hugmynd til framkvæmdar.
Stoðkerfið verður kynnt ásamt styrkjamöguleikum og reynslusögum deilt.
Í lok dagskrár hafa áhugasamir tækifæri til að spjalla við ráðgjafa.
Dagskrá
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri hjá Impru/Nýsköpunarmiðstöð Íslands
?Einstök íslensk upplifun?
Þórður Freyr Sigurðsson, atvinnuráðgjafi og verkefnastjóri hjá SASS.
?Stoðkerfi og styrkjamöguleikar?
Ingunni Jónsdóttur vöruhönnuður og verkefnisstjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands og Matís.
?Nýsköpunarhugsun í námi?
Kaffihlé
Reynslusögur fyrirtækja í Uppsveitum Árnessýslu
Umræður um nýsköpun með þátttöku fyrirlesara og fundarmanna
Áhugasamir geta spjallað við ráðgjafa í lok fundar
Staðsetning fundarins er á Cafe mika í Reykholti.
Vinsamlegast skráið ykkur á fundinn:
netfang asborg@ismennt.is sími 898 1957
Allir áhugasamir velkomnir.
Ferðamálaráð Uppsveita Árnessýslu