Frítt í Strætó með leið 15 á Bæjarhátíð Mosfellsbæjar

Fréttir 22.08.2016
Frítt verður í leið 15, sem ekur á bæjarhátíð Mosfellsbæjar Í TÚNINU HEIMA, laugardaginn 27. ágúst. Mikið er um að vera í bænum á hátíðinni sem stendur yfir í þrjá daga. Hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Bærinn er klæddur í hátíðarbúning með skreytingum þar sem hvert hverfi hefur sinn lit. Fjölbreyttir menningarviðburðir eru í boði, tónleikar, myndlistarsýningar, útimarkaðir og íþróttaviðburðir svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin hefst formlega á föstudagskvöldinu með skrúðgöngu og brekkusöng í Álafosskvos. Strætó hvetur gesti hátíðarinnar til þess að nýta sér ókeypis strætóferðir á hátíðina.   Ef óskað er nánari upplýsinga þá er Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri,  talsmaður fyrirtækisins. Netfangið hans er johannesru@straeto.is og síminn er 660 1488