Fréttatilkynning frá dýragarðinum Slakka í Laugarási
Fréttir
30.06.2014
Litli húsdýragarðurinn í Slakka í Laugarási er orðinn 21 árs gamall.
Í tilefni af tímamótunum ætlar Helgi Sveinbjörnsson að opna tvöfalda ljósmyndasýningu í Slakka
miðvikudaginn 2. júlí kl. 18:00
Annars vegar er um að ræða ljósmyndir sem spanna sögu Slakka frá upphafi og er hún í gamla bænum
og hins vegar eru ljósmyndir af íslenskri náttúru sem Gunnar Steinn Úlfarsson (Made by Iceland) hefur tekið og eru þær í salnum.
Slakki er á facebook
https://www.facebook.com/slakki