Frestur til að leggja fram framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í Bláskógabyggð 31.maí 2014

Fréttir 30.04.2014
Frestur til að leggja fram framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í Bláskógabyggð rennur út kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 10. maí 2014.  Þann dag tekur yfirkjörstjórn á móti framboðslistum milli kl. 11:00 ? 12:00 á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Uppsveita, Dalbraut 12, Laugarvatni. Hverjum framboðslista ber að fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru og auk þess listi yfir meðmælendur að lágmarki 20 og hámarki 40.  Vísað er til laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.  Jafnframt er bent á heimasíðuna http://www.kosning.is/  þar sem hægt er að finna leiðbeiningar og eyðublöð fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista. Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar Pétur Skarphéðinsson, Langholti 3, Laugarási Hilmar Einarsson, Torfholti 12, Laugarvatni Þóra Einarsdóttir, Kárastöðum, Þingvallasveit