Framlagning kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninga þann 26. maí 2018.

Fréttir 15.05.2018
Kjörskrá, vegna sveitarstjórnarkosninga þann 26. maí n.k., liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma. Almennur skrifstofutími er frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:30 til 16:00 og á föstudögum frá kl. 8:30 til 12:30. Kjörskráin mun liggja frammi til kl. 12:30 föstudaginn 25. maí 2018. Í lögum um kosningar til sveitarstjórnar segir m.a: Sveitarstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir er henni berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Slíka leiðréttingu má gera fram á kjördag. Óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist þjóðskrá fyrir þann tíma er greinir í 5. gr. (þ.e. 5. maí 2018) Sveitarstjórn skal enn fremur fram á kjördag leiðrétta kjörskrá ef henni berst vitneskja um andlát eða um að einhver hafi öðlast, eftir atvikum misst, íslenskt, danskt, finnskt, norskt eða sænskt ríkisfang. Sveitarstóri Bláskógabyggðar   Einnig er hægt að nálgast upplýsingar með því að skrá eftirfarandi slóð https://www.stjornarradid.is/default.aspx?PageID=55a97c66-80d2-4b14-a8d4-018055ed824f og fá upplýsingar um hvar viðkomandi er á kjörskrá.