Framlagning kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninga þann 14. maí 2022.

Fréttir 11.04.2022
Kjörskrá, vegna sveitarstjórnarkosninga þann 14. maí n.k., liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma frá og með 23. apríl 2022.  Almennur skrifstofutími er frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:30 til 16:00 og á föstudögum frá kl. 8:30 til 12:30.  Kjörskráin mun liggja frammi til kl. 12:30 föstudaginn 13. maí 2022     Sveitarstjóri Bláskógabyggðar   Bent er á upplýsingavef  http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna.  Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni  https://www.skra.is/thjonusta/einstaklingar/kjorskra-og-kosningarettur/