Framlagning kjörskrár vegna forsetakosninga 1. júní 2024
Fréttir
02.05.2024
Kjörskrá, vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024 verður lögð fram þann 11. maí 2024, kjörskráin liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma. Almennur skrifstofutími er frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:30 til 16:00 og á föstudögum frá kl. 8:30 til 12:30.
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar með því að smella á eftirfarandi slóð:
https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/ og fá upplýsingar um hvar viðkomandi er á kjörskrá
Sveitarstjóri Bláskógabyggðar