Framlagning kjörskrár fyrir Bláskógabyggð vegna ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012 um tillögur stjórnlagaráðs
Fréttir
09.10.2012
Kjörskrá, vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012 um tillögur stjórnlagaráðs, liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma. Almennur skrifstofutími er frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:30 til 16:00 og á föstudögum frá kl. 8:30 til 12:30. Kjörskráin mun liggja frammi til kl. 12:30 föstudaginn 19. október 2012.
Sveitarstjóri Bláskógabyggðar
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar með því að skrá eftirfarandi slóðhttp://www.kosning.is/kjosendur/fletta-i-kjorskra/ og fá upplýsingar um hvar viðkomandi er á kjörskrá.