Framlagning kjörskrár fyrir Bláskógabyggð vegna kosninga til Alþingis 25. september 2021

Fréttir 06.09.2021
Kjörskrá, vegna kosninga til Alþingis 25. september 2021 verður lögð fram þann 10. september 2021, kjörskráin liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma.  Almennur skrifstofutími er frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:30 til 16:00 og á föstudögum frá kl. 8:30 til 12:30.   Sveitarstjóri Bláskógabyggðar     Einnig er hægt að nálgast upplýsingar með því að skrá eftirfarandi slóð https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/  og fá upplýsingar um hvar viðkomandi er á kjörskrá.