Framlagning kjörskrár
Fréttir
22.06.2016
vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016
Kjörskrá, vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016, liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma frá og með 15. júní 2016. Almennur skrifstofutími er frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:30 til 16:00 og á föstudögum frá kl. 8:30 til 12:30. Kjörskráin mun liggja frammi til kl. 12:30 föstudaginn 24. júní 2016.
Bent er á upplýsingavef innanríkisráðuneytisins http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá.
Sveitarstjóri Bláskógabyggðar