Framkvæmdir 4. nóvember ? Biskupstungnabraut

Fréttir 04.11.2021
Nú stendur til að gera aðra tilraun til að malbika Biskupstungnabraut á morgun, fimmtudaginn 4. nóvember.
Vegagerðin hefur gefið heimild til framkvæmda, ef veður leyfir.
Veginum verður alveg lokað á milli Þingvallavegar og Miðengisvegar. Hjáleið verður um Búrfellsveg. Viðeigandi merkingar verða settar upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 22:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.