Forsetakosningar 27. júní 2020 framlagning kjörskrár og kjörstaðir í Bláskógabyggð

Fréttir 24.06.2020

Kjörfundur vegna forsetakosninga

Kjörstaðir í Bláskógabyggð eru tveir:

  1. Félagsheimilinu Aratungu, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum.
  2. Bláskógaskóla Laugarvatni, Lindarbraut 6, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.

Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum laugardaginn 27. júní n.k. kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd. Einstaklingar búsettir erlendis, sem hafa kosningarétt í Bláskógabyggð, eru á kjörskrá í kjördeild I, Reykholti

Kjörskrá fyrir Bláskógabyggð liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins í Aratungu frá 16. júní til kjördags á opnunartíma frá kl. 8:30 til 16, föstudaga frá kl. 8:30 til 12:30.

Bent er á upplýsingavef http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni https://www.skra.is/thjonusta/einstaklingar/kjorskra-og-kosningarettur/

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar