Forsætisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2021.

Fréttir 29.09.2021
Forsætisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2021. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði kynjajafnréttismála.   Skipuð hefur verið sérstök valnefnd í samræmi við 2. málsl. 4. mgr. 24. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem velur úr innsendum tilnefningum.   Tilnefningum skal skila rafrænt eigi síðar en 10. október 2021 til forsætisráðuneytisins á netfangið for@for.is. Rökstuðningur vegna tilnefningar skal fylgja með.