Fjalla-Eyvindur í Gamla Bankanum
Fréttir
04.05.2016
Einleikurinn Fjalla-Eyvindar verður sýndur á lofti Gamla Bankans Austurvegi 21, Selfossi laugardaginn 14. maí n.k. kl. 20:00. Sýningin er samin og leikin af leikaranum Elfari Loga Hannessyni en hann hefur samið og leikið í fjölda leikverka má þar nefna verðlaunaleikinn Gísli Súrsson og Gretti. Á undan sýningunni mun Guðmundur G. Þórarinsson segja frá sinni sýn á lífshlaupi Fjalla-Eyvindar.
Miðaverð er 2500 kr og 2000 kr hópa af stærðinni 10 og fleiri. Þeir sem vilja tryggja sér miða geta gert það með því að hringja í síma 894-1275. Húsið mun opna kl. 19:30.
Bók Hjartar Þórarinssonar, Afreksfólk öræfanna, sem er um Fjalla-Eyvind verður til sölu á staðnum.
(Kaffi er innifalið í miðaverðinu)