Fella- og fjallgönguverkefni:

Fréttir 30.06.2020
Heilsueflandi Uppsveitir, sem er samstarfsverkefni sveitarfélaganna í uppsveitum Árnessýslu, er með fella- og fjallgönguverkefni í gangi til að hvetja íbúa og gesti til ganga 5 fell í uppsveitunum. Fellin eru öll aðgengileg og leiðirnar stikaðar þar sem þörf er og ættu flestir að finna sér fjall eða fell við hæfi. Upp á hverju felli er póstkassi og gestabók. Ætlar þú að ganga á 2 eða 3 fell í sumar? Verkefnið er í gangi til 13. september. Fellin eru: · Laugarfell á Geysisvæðinu · Stöðulfell í Skeið- og Gnúpverjahreppi · Mosfell í Grímsnesi · Byrgi Fjalla-Eyvindar í Skipholtsfjalli í Hrunamannahreppi · Bláfell á Biskupstungnaafrétti Við bjóðum upp á gönguferðir með leiðsögn á fjögur fell í sumar · 14 Júlí. Byrgi Fjalla-Eyvindar: Lagt af stað frá Jötu kl 17.30 · 21 Júlí. Stöðulfell: Lagt af stað frá bænum Stöðulfelli kl 17.30 · 11. ágúst. Mosfell: Lagt af stað frá Mosfellskirkju kl 17.30 · 22 Ágúst. Bláfell: Lagt af stað frá bílastæði á Bláfellshálsinum kl 11 Hvetjum ykkur til að taka dagana frá og ganga með okkur Frekari upplýsingar inn á sveitir.is, undir Heilsueflandi Uppsveitir, og einnig Instagramreikningum og facebooksíðunni @uppsveitir