Félagsmiðstöðin Zero

Fréttir 07.06.2013
Starfsmann vantar í 60% starf til að hafa umsjón með starfsemi Félagsmiðstöðvarinnar Zero á Flúðum.   Félagsmiðstöðin er rekin í samvinnu Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.  Laun eru skv. kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna/Bárunnar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 15. ágúst nk. Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri Hrunamannahrepps í síma 480 6600 eðajon@fludir.is.   Umsóknum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps í síðasta lagi 21. júní n.k.