Feðgar á ferð á tveimur DVD diskum

Fréttir 13.12.2016
Feðgar á ferð eru skemmtilegir þættir sem sýndir voru á Stöð 2 sumarið 2015 og sumarið 2016, alls tuttugu þættir. Í þáttunum heimsækja þeir feðgar, Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður á Selfossi og Fannar Freyr Magnússon jákvætt og skemmtilegt fólk. Fólkið er á öllum aldrei og hefur frá mörgum skemmtilegu að segja. Jákvæðni og lífsgleði er mottó þáttanna. Nú gefst öllum tækifæri á á að sjá þættina, ekki síst þeim sem eru ekki áskrifendur á Stöð 2 og misstu því af þáttunum.   16 systkinin frá Kjóastöðum í Biskupstungum eru m.a. heimsótti, hamingjusamar hænur í Þykkvabænum eru sóttar heimar, farið er í sauðburð í Skarði í Landsveit, tekið er hús á flösku og dósasafnara í Rangárþingi, skrýtnustu hundar landsins eru skoðaðir, einn þáttur erum um flottustu Willys jeppa landsins, Þórður Tómasson, 95 ára í Skógum undir Eyjafjöllum er heimsóttur, níu ára undrabarn í Garðabæ í píanóleik sýnir listir sínar   Hægt er að panta DVD diskana á heimasíðunni www.fedgaraferd.is og þeir eru líka seldir í Krónunni í Lindarhverfinu í Kópavogi og í Krónunni á Selfossi, Bónus í Hveragerði og Selfossi og í Bókakaffinu á Selfossi.