Covid bólusetningar 5-11 ára barna í Árnes ? og Rangárvallasýslu.

Fréttir 15.02.2022
Nú verður hætt að boða börn 5-11 ára í Covid bólusetningar. Hægt verður að panta tíma í síma á þinni heilsugæslustöð. Bólusett verður með barnaskammti af bóluefni Pfizer. Hér mega mæta: ? Allir sem eru óbólusettir og orðnir 5 ára til og með 11 ára. Þeir þurfa að koma í fylgd með forráðamanni (eða þá einhverjum eldri en 18 ára og með umboð frá forráðamönnum). ? Þeir sem eiga eftir að fá skammt nr. 2. Það þurfa að líða a.m.k 3 vikur milli fyrri og seinni skammts. ? Ef barn nær 12 ára aldri á milli bólusetningaskammta þarf það að fá fullorðins bóluefni sem seinni skammt. ? Þau börn sem hafa fengið Covid-19 mega fá bólusetningu þremur mánuðum eftir veikindi. Munið að skrá barnið ef um fyrstu bólusetningu er að ræða samkvæmt leiðbeiningum hér að neðan https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item48458/Samthykkisferli-fyrir-bolusetningar-5-11-ara-barna-er-virkt-7-1-2022 Bólusetningarstaður: Þingborg Flóahreppi