Ritari með aðstöðu á Laugarvatni
Starfssvið:
· Almenn skrifstofuvinna.
· Skráning og meðhöndlun skjala.
· Sjá um upplýsingar á heimasíðu embættisins.
· Svörun fyrirspurna sem berast embættinu, bæði í gegnum síma og tölvupóst.
|
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Góð almenn tölvukunnátta skilyrði.
· Reynsla af skrifstofuvinnu með áherslu á skjalavinnslu er kostur.
· Sjálfstæði í vinnubrögðum og vilji til að kynna sér nýjungar og takast á við fjölbreytt verkefni.
· Hafa góða þjónustulund.
|
Starfsmaður á tæknisviði með aðstöðu á Borg
Starfssvið:
· Verkefnastjórnun og verkeftirlit fjölbreyttra verkefna.
· Samskipti við opinbera aðila, hönnuði og verktaka
· Vinna við fráveitumál.
· Vinna við GPS landmælingar og landupplýsingar.
· Vinna við kaldavatns- og hitaveitur.
· Vinna með byggingarfulltrúa að ákveðnum verkefnum s.s. eftirlit, afleysingar, mælingar o.fl.
|
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Tæknifræðingur eða verkfræðingur.
· Reynsla af verkefnastjórnun.
· Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu.
· Hæfni í mannlegum samskiptum.
· Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
· Þekking og reynsla af notkun Windows-Office og CAD-hugbúnaðar. |
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Uppsveita bs. hefur það hlutverk að annast lögbundin verkefni skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa fyrir aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins auk þess að vinna að tækni- og framkvæmdamálum. Byggðasamlagið er með starfsstöðvar á Laugarvatni í Bláskógabyggð og á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi og þjónar sveitarfélögunum Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi. Umsóknir skulu berast embættinu að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni, fyrir 19. febrúar n.k. Nánari upplýsingar um starf ritara veitir Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi (
petur@sudurland.is) í síma 486 1145 og upplýsingar um starf á tæknisviði veitir Börkur Brynjarsson (
borkur@sudurland.is) í síma 480-5500 milli kl. 9 og 12 alla virka daga.