Breyting á þjónustu vegna COVID-19

Fréttir 25.03.2021
 
  1. mars 2021
Takmarkanir á starfsemi Bláskógabyggðar taka mið af auglýsingu ráðherra sem gildir frá miðnætti 24. mars 2021. Eftirfarandi breytingar tóku þá gildi varðandi starfsemi Bláskógabyggðar og þjónustu sveitarfélagsins vegna COVID-19. Skrifstofa: Skrifstofa sveitarfélagsins er með hefðbundinn afgreiðslutíma. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk (2ja metra reglu). Hvatt er til þess að hafa samband við skrifstofuna með tölvupósti eða í gegnum síma, fremur en að koma á staðinn.   Bláskógaveita: Starfsemi er hefðbundin að öðru leyti en því að starfsmenn sinna ekki álestrum og mælaskiptum inni á heimilum. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk (2ja metra reglu).   Bókasafn: Bókasafnið í Bláskógaskóla, Reykholti, er lokað á skólatíma, en opið á hefðbundnum opnunartíma utan skólatíma. Bókasafn Menntaskólans á Laugarvatni er lokað.   Félagsheimilið Aratunga: Lokað er fyrir útleigu á Aratungu.   Félagsmiðstöð: Félagsmiðstöðin Zetor verður lokuð.   Gámasvæði: Afgreiðslutími er hefðbundinn. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk og vera með grímu ef ekki er unnt að virða 2ja metra reglu. Regla um fjöldatakmarkanir (10 manns) gildir á gámasvæðum.   Íþróttamiðstöðvarnar í Reykholti og á Laugarvatni: Sundlaugar, líkamsrækt og íþróttahús eru lokuð.   Mötuneyti Aratungu: Lokað er fyrir aðgang kostgangara að mötuneyti og gildir það einnig um gesti á stofnunum sveitarfélagsins. Lokað er fyrir aðgang eldri borgara að mötuneyti, en þeir geta sótt mat á staðinn til að taka með heim, eða fengið mat sendan heim. Mötuneyti starfar með hefðbundnum hætti fyrir leikskóla.   Matur fyrir eldri borgara á Laugarvatni: Enn sem komið er geta eldri borgarar á Laugarvatni ekki komið í mötuneyti ML, þar sem takmarkanir gilda.   Skólastarf í Bláskógabyggð: Leikskólar starfa með hefðbundnum hætti þar sem takmarkanir á samkomuhaldi gilda ekki fyrir börn fædd 2015 og síðar. Takmarkanir gilda hvað varðar starfsfólk og foreldra. Grunnskólar og frístund verða lokuð og hefst því páskafrí óvenju snemma í ár. Tilkynnt verður síðar um fyrirkomulag skólahalds eftir páska.   Velferðarþjónusta Árnesþings Þjónusta er veitt gegnum síma og tölvupóst eða fjarfundabúnað þegar við á. Uppsveitir s. 480-1180 Barnavernd - Tilkynningum um barnavernd skal beina á netfangið barnavernd@arnesthing.is eða í síma 483-4000. Utan hefðbundins dagvinnutíma er hringt í síma 112 ef tilkynning er þess eðlis að bregðast þurfi við henni tafarlaust. Heimaþjónusta ? sími 480-1180. Netfang sigrun@laugaras.is Fjárhagsaðstoð og húsnæðisstuðningur ? vinsamlega hringið í 480-1180 eða sendið tölvupóst á netfangið eyrun@arnesthing.is Málefni fatlaðs fólks - áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma eða tölvupóst. Sími 483-4000, Netfang arna@arnesthing.is     Almennt um stofnanir sveitarfélagsins: Leitast verður við að hafa fjarfundi í stað funda á staðnum og ekki verða haldnir fundir á staðnum með utanaðkomandi aðilum. Takmarka skal eins og hægt er ferðir starfsmanna á milli stofnana, en þar sem það er nauðsynlegt verði grímuskylda (dæmi starfsmaður sem sækir mat í mötuneyti, starfsmaður sem sinnir nauðsynlegu viðhaldi o.þ.h.). Heimsóknum utanaðkomandi aðila (s.s. eftirlit, viðhald, þjónusta) verður frestað ef unnt er, en ef nauðsynlegt reynist að fá utanaðkomandi aðila inn á stofnun þá er grímuskylda og skal þess gætt að viðkomandi aðili hitti sem fæsta starfsmenn, nemendur eða aðra notendur þjónustu. Í þeim tilvikum þar sem verktakar sinna ræstingum utan opnunartíma er ekki grímuskylda.