Breyting á þjónustu vegna COVID-19

Fréttir 05.10.2020
Breyting á þjónustu vegna COVID-19
  1. október 2020
Takmarkanir á starfsemi Bláskógabyggðar taka mið af auglýsingu ráðherra sem tók gildi á miðnætti 5. október 2020. Eftirfarandi breytingar tóku þá gildi varðandi starfsemi Bláskógabyggðar og þjónustu sveitarfélagsins vegna COVID-19. Almennt um stofnanir sveitarfélagsins: Leitast verður við að hafa fjarfundi í stað funda á staðnum og ekki verða haldnir fundir á staðnum með utanaðkomandi aðilum. Takmarka skal eins og hægt er ferðir starfsmanna á milli stofnana, en þar sem það er nauðsynlegt verði grímuskylda (dæmi starfsmaður sem sækir mat í mötuneyti, starfsmaður sem sinnir nauðsynlegu viðhaldi o.þ.h.). Heimsóknum utanaðkomandi aðila (s.s. eftirlit, viðhald, þjónusta) verður frestað ef unnt er, en ef nauðsynlegt reynist að fá utanaðkomandi aðila inn á stofnun þá er grímuskylda og skal þess gætt að viðkomandi aðili hitti sem fæsta starfsmenn, nemendur eða aðra notendur þjónustu. Í þeim tilvikum þar sem verktakar sinna ræstingum utan opnunartíma er ekki grímuskylda.   Skrifstofa: Skrifstofa sveitarfélagsins er með hefðbundinn afgreiðslutíma. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk (1 metra reglu). Hvatt er til þess að hafa samband við skrifstofuna með tölvupósti eða í gegnum síma, fremur en að koma á staðinn.   Bláskógaveita: Starfsemi er hefðbundin að öðru leyti en því að starfsmenn sinna ekki álestrum og mælaskiptum inni á heimilum. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk (1 metra reglu).   Félagsheimilið Aratunga: Opið er fyrir útleigu á Aratungu, enda verði farið eftir reglum um hámarksfjölda einstaklinga sem koma saman, sem er nú 20 manns, og gætt að fjarlægðarmörkum.   Félagsmiðstöð: Félagsmiðstöðin Zetor verður lokuð á meðan strangar samkomutakmarkanir gilda, er það gert þar sem ungmenni úr nokkrum skólum koma þar saman og til að draga úr hættu á smiti á milli skólanna.   Gámasvæði: Afgreiðslutími er hefðbundinn. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk.   Íþróttamiðstöðvarnar í Reykholti og á Laugarvatni: Sundlaugar eru opnar en sérstakar takmarkanir gilda um gestafjölda, 50% af heimild skv. starfsleyfi, auk þess sem gæta skal að fjarlægðartakmörkunum. Íþróttahús eru opin fyrir kennslu og íþróttir leik- og grunnskólabarna með hefðbundnum hætti, en takmarkanir gilda um íþróttir fullorðinna í samræmi við reglur sérsambanda ÍSÍ. Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum innandyra, og er foreldrum því óheimilt að fylgja börnum sínum inn í íþróttahús. Líkamsrækt er lokuð. Starfsemi nuddara og sjúkraþjálfara í íþróttahúsum Bláskógabyggðar er heimiluð, en grímuskylda í gildi.   Mötuneyti Aratungu: Lokað er fyrir aðgang kostgangara að mötuneyti og gildir það einnig um gesti á stofnunum sveitarfélagsins. Eldri borgarar hafa aðgang að mötuneyti, en geta einnig valið að sækja mat á staðinn til að taka með heim. Eldri borgarar mæta ekki í mötuneyti fyrr en kl. 12:00 til að forðast samgang við nemendur og starfsfólk grunnskóla. Mötuneyti starfar með hefðbundnum hætti fyrir grunn- og leikskóla. Starfsmenn skrifstofu hafa aðgengi að mötuneytinu.   Matur fyrir eldri borgara á Laugarvatni: Enn sem komið er geta eldri borgarar á Laugarvatni ekki komið í mötuneyti ML, þar sem ýmsar takmarkanir gilda.   Skólastarf í Bláskógabyggð: Grunn- og leikskólar starfa með hefðbundnum hætti þar sem takmarkanir á samkomuhaldi gilda ekki fyrir börn fædd 2005 og síðar. Takmarkanir gilda enn hvað varðar starfsfólk og foreldra. Skólastjórnendur munu kynna fyrirkomulag hver í sínum skóla, en takmarkanir eru t.d. á komum foreldra inn í skóla og foreldrar leikskólabarna fylgja þeim ekki lengra en í fataklefa.   Velferðarþjónusta Árnesþings ? afgreiðsla meðan neyðarástand almannavarna stendur yfir Ekki er hægt að koma í viðtal á skrifstofu meðan neyðarástand almannavarna stendur yfir. Þjónusta er veitt gegnum síma og tölvupóst eða fjarfundabúnað þegar við á. Uppsveitir s. 480-1180 Barnavernd - Tilkynningum um barnavernd skal beina á netfangið barnavernd@arnesthing.is eða í síma 483-4000. Utan hefðbundins dagvinnutíma er hringt í síma 112 ef tilkynning er þess eðlis að bregðast þurfi við henni tafarlaust. Heimaþjónusta ? sími 480-1180. Netfang sigrun@laugaras.is Fjárhagsaðstoð og húsnæðisstuðningur ? vinsamlega hringið í 480-1180 eða sendið tölvupóst á netfangið sigurjon@arnesthing.is Málefni fatlaðs fólks - áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma eða tölvupóst. Sími 483-4000, Netfang arna@arnesthing.is