Breyting á þjónustu vegna COVID-19

Fréttir 04.05.2020
  1. maí 2020
Nokkuð hefur verið slakað á samkomubanni, einkum hvað varðar starfsemi leik- og grunnskóla. Eftirfarandi breytingar gilda nú hvað varðar starfsemi Bláskógabyggðar og þjónustu sveitarfélagsins vegna COVID-19 og takmarkana á samkomuhaldi. Skrifstofa: Skrifstofa sveitarfélagsins verður með hefðbundinn afgreiðslutíma frá 4. maí n.k.   Bláskógaveita: Starfsmenn sinna ekki mælaskiptum og álestri. Starfsmenn sinna bilanaþjónustu og rekstri veitna.   Bókasafn: Bókasafn Bláskógabyggðar í Bláskógaskóla verður með hefðbundinn afgreiðslutíma. Bókasafn Menntaskólans á Laugarvatni er lokað, tilkynning um möguleika á útlánum verður birt á facebook.   Félagsheimilið Aratunga: Lokað er fyrir útleigu á Aratungu.   Félagsmiðstöð: Félagsmiðstöð opnar að nýju eftir 4. maí.   Gámasvæði: Opnunartími er óbreyttur. Óheimilt er að skila flokkuðum endurvinnsluúrgangi frá heimilum sem eru í sóttkví eða eingangrun á gámasvæði. Allur úrgangur frá heimilum í sóttkví eða einangrun skal fara í óflokkað sorp (almennan úrgang).   Íþróttamiðstöðvarnar í Reykholti og á Laugarvatni: Sundlaugar, íþróttahús og líkamsrækt eru lokuð, nema fyrir skólasund og æfingar barna og ungmenna. Íþróttaæfingar geta hafist að nýju, með þeim takmörkunum sem tilkynntar hafa verið. Starfsemi nuddara og sjúkraþjálfara í íþróttahúsum Bláskógabyggðar getur hafist á ný 4. maí.   Mötuneyti Aratungu: Lokað er fyrir aðgang kostgangara að mötuneyti. Lokað er fyrir aðgang eldri borgara að mötuneyti, en þeim gefinn kostur á að fá heimsendan mat. Mötuneyti mun starfa með hefðbundnum hætti fyrir grunn- og leikskóla frá og með 4. maí. Starfsmenn skrifstofu hafa ekki aðgengi að mötuneytinu.   Matur fyrir eldri borgara á Laugarvatni: Ekki er matur fyrir eldri borgara þar sem mötuneyti ML hefur lokað.   Skólastarf í Bláskógabyggð: Frá og með mánudeginum 4. maí starfa grunn- og leikskólar með hefðbundnum hætti þar sem takmarkanir á samkomuhaldi hafa verið felldar niður hvað varðar nemendur. Enn um sinn gilda takmarkanir hvað varðar starfsfólk og foreldra.   Velferðarþjónusta Árnesþings ? afgreiðsla meðan samkomubann stendur yfir: Almennt gildir að áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma. Ekki er hægt að koma í viðtal á skrifstofum meðan þetta ástand varir. Barnavernd-  Tilkynningum um barnavernd skal beina á netfangið barnavernd@arnesthing.is eða í síma 480-1180. Utan hefðbundins dagvinnutíma er hringt í síma 112 ef tilkynning er þess eðlis að bregðast þurfi við henni tafarlaust. Heimaþjónusta ? síma 480-1180. Netfang sigrun@laugaras.is Fjárhagsaðstoð og húsnæðisstuðningur ? vinsamlega hringið í 483-4000 eða sendið tölvupóst á netfangið sigurjon@arnesthing.is Málefni fatlaðs fólks - áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma eða tölvupóst. Sími 483-4000, netfang arna@arnesthing.is Unnið er eftir forgangslista varðandi heimaþjónustu. Notendur heimaþjónustu frá tilkynningar frá heimaþjónustunni varðandi fyrirkomulag.