Breyting á þjónustu vegna COVID-19

Fréttir 16.03.2020
Eftirfarandi breytingar hafa verið ákveðnar á starfsemi Bláskógabyggðar og þjónustu sveitarfélagsins vegna útbreiðslu COVID-19 og takmarkana á samkomuhaldi. Breytingar geta orðið á þessari áætlun með skömmum fyrirvara. Skrifstofa: Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð almenningi. Starfsfólk sinnir vinnu heiman frá eða á skrifstofunni eftir ákveðnu skipulagi. Svarað er í síma 480 3000 og senda má erindi á netfangið blaskogabyggd@blaskogabggd.is, auk þess sem netöng starfsmanna eru aðgengileg á heimasíðunni www.blaskogabyggd.is Ekki verður svarað í síma þriðjudaginn 17. mars frá kl. 12 og föstudaginn 20. mars frá kl. 8-12 vegna tenginga á varaafli og færslu á netþjóni.   Bláskógaveita: Starfsmenn sinna ekki mælaskiptum og álestri. Starfsmenn sinna bilanaþjónustu og rekstri veitna.   Bókasafn: Bókasafn Bláskógabyggðar í Bláskógaskóla er lokað tímabundið. Bókasafn Menntaskólans á Laugarvatni er lokað tímabundið.   Félagsheimilið Aratunga: Lokað er fyrir útleigu á Aratungu þar til annað verður ákveðið.   Velferðarþjónusta Árnesþings ? afgreiðsla meðan samkomubann stendur yfir: Almennt gildir að áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma. Ekki er hægt að koma í viðtal á skrifstofum meðan þetta ástand varir. Barnavernd-  Tilkynningum um barnavernd skal beina á netfangið barnavernd@arnesthing.is eða í síma 480-1180. Utan hefðbundins dagvinnutíma er hringt í síma 112 ef tilkynning er þess eðlis að bregðast þurfi við henni tafarlaust. Heimaþjónusta ? síma 480-1180. Netfang sigrun@laugaras.is Fjárhagsaðstoð og húsnæðisstuðningur ? vinsamlega hringið í 483-4000 eða sendið tölvupóst á netfangið sigurjon@arnesthing.is Málefni fatlaðs fólks - áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma eða tölvupóst. Sími 483-4000, netfang arna@arnesthing.is Unnið er eftir forgangslista varðandi heimaþjónustu. Notendur heimaþjónustu frá tilkynningar frá heimaþjónustunni varðandi fyrirkomulag.   Gámasvæði: Opnunartími er óbreyttur. Óheimilt er að skila flokkuðum endurvinnsluúrgangi frá heimilum sem eru í sóttkví eða eingangrun á gámasvæði. Allur úrgangur frá heimilum í sóttkví eða einangrun skal fara í óflokkað sorp (almennan úrgang).   Íþróttamiðstöðvarnar í Reykholti og á Laugarvatni: Sundlaugar, íþróttahús og líkamsrækt verða lokuð dagana 16. mars til og með 22. mars. Leigutökum verður þó heimilt aðgengi að útleigðum rýmum.   Mötuneyti Aratungu: Lokað er fyrir aðgang kostgangara að mötuneyti, tímabundið. Lokað er fyrir aðgang eldri borgara að mötuneyti, tímabundið, en þeim gefinn kostur á að fá heimsendan mat. Mötuneyti sinnir takmarkaðri þjónustu við grunn- og leikskóla. Ekki verður boðið upp á hádegismat fyrir nemendur.   Matur fyrir eldri borgara á Laugarvatni: Ekki er matur fyrir eldri borgara þar sem mötuneyti ML hefur lokað.   Skólastarf í Bláskógabyggð: Skólastjórnendur vinna áætlanir um starfsemi leik- og grunnskóla á meðan takmarkanir gilda og kynna þær.