Bláskógaskóli Reykholti óskar eftir að ráða umsjónarkennara á miðstigi og stuðningsfulltrúa/leiðbeinanda í Frístund
Fréttir
24.07.2020
Skólinn er fyrir nemendur í 1. til 10. bekk. Í skólanum eru 83 nemendur og þar starfa 20 starfsmenn. Kjörorð skólans eru Virðing-Vellíðan-Samvinna. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, teymisvinnu, verkefnamiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti og list- og verkgreinar.
Bláskógaskóli í Reykholti er annar tveggja grunnskóla Bláskógabyggðar. Gott samstarf er við leikskólann Álfaborg í Reykholti, Bláskógaskóla á Laugarvatni og Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Eftirfarandi störf eru í boði:
Umsjónarkennari á miðstigi
Um er að ræða 100% stöðu umsjónarkennara í teymi á miðstigi.
Hæfniskröfur:
- Kennsluréttindi
- Áhugi á fjölbreyttum kennsluháttum
- Reynsla af teymisvinnu er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Stuðningsfulltrúi/leiðbeinandi í Frístund
Um er að ræða 80% stöðu stuðningsfulltrúa og leiðbeinanda í Frístund
Vinnutími er frá kl. 11-16:30
Hæfniskröfur:
- Góð færni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Framtakssemi og jákvæðni
- Góð íslenskukunnátta
- Störfin henta jafnt körlum sem konum.
- Umsóknarfrestur er til 6. ágúst 2020.
- Nánari upplýsingar veitir Lára Bergljót Jónsdóttir, viðtakandi skólastjóri, í síma 847 5353. Umsókn ásamt ferilskrá skal send á netfangið lbj@blaskogaskoli.is.