Bláskógaskóli Laugarvatni auglýsir eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár.

Fréttir 11.06.2020
  • Hlutastarf smíðakennara/útinámskennara
  • Hlutastarf kennara í teymisvinnu á öllum stigum, að mestu afleysingarkennsla.
Hæfniskröfur:
  • Kennsluréttindi
  • Áhugi á útinámi og fjölbreyttum kennsluháttum
  • Reynsla af teymisvinnu er góður kostur
  • Áhugi á lotukennslu mikilvægur
  • Færni í mannlegum samskiptum er mikilvæg
  • ART þjálfari er kostur
  • Jákvæðni og áhugi fyrir margbreytilegu starfi
  • Lausnamiðun í starfi er mikilvægur eiginleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð meðmæli úr fyrri störfum.
  Bláskógaskóli á Laugarvatni er samrekinn leik- og grunnskóli í Bláskógabyggð sem leggur meðal annars mikla áherslu á samfellu á milli skólastiganna, fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Útinám er stór þáttur í stefnu skólans og mikilvægt er að kennarar og starfsmenn skólans upplifi tækifæri til fjölbreyttra kennsluhátta í nærumhverfi skólans. Í skólanum er lagt áherslu á góða samvinnu allra þeirra sem starfa í skólanum. Námsumhverfi nemenda endurspeglast meðal annars í ánægðu og samstilltu starfsfólki. Störfin henta jafnt körlum sem konum. Umsóknarfrestur er til og með 24. júní nk. Nánari upplýsingar veitir Elfa Birkisdóttir skólastjóri í síma: 480-3030 eða í gegnum tölvupóst elfa@blaskogaskoli.is