Bláskógaskóli Laugarvatni auglýsir eftir starfsmanni á leikskóladeild

Fréttir 15.01.2021
Starfshlutfall er 60% en gæti aukist. Gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Verkefni eru hvað mest í afleysingum á deildum og í eldhúsi leikskóladeildar. Um er að ræða tímabundinn samning til 30. júní. Horft verður til meðmæla úr fyrri störfum og hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og lausnamiðun skipta miklu máli. Mikilvægt er að umsókn fylgi meðmæli og ferilskrá. Umsóknarfrestur er til 25. janúar. Fyrirspurnum og umsóknum svarar Elfa Birkisdóttir skólastjóri í síma 480-3030 og í tölvupósi elfa@blaskogaskoli.is