Bláskógaskóli á Laugarvatni auglýsir eftirfarandi starf til umsóknar:
Hlutastarf smíðakennara og útnámskennara.
Hæfniskröfur:
? Kennsluréttindi
? Áhugi á útinámi og fjölbreyttum kennsluháttum
? Reynsla af teymisvinnu er góður kostur
? Áhugi á lotukennslu mikilvægur
? Færni í mannlegum samskiptum er mikilvæg
? ART þjálfari er kostur
? Jákvæðni og áhugi fyrir margbreytilegu starfi
? Lausnamiðun í starfi er mikilvægur eiginleiki
? Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
? Góð meðmæli úr fyrri störfum.
Bláskógaskóli á Laugarvatni er samrekinn leik- og grunnskóli í Bláskógabyggð sem leggur meðal annars mikla
áherslu á samfellu á milli skólastiganna, fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Útinám er stór þáttur í
stefnu skólans og mikilvægt er að kennarar og starfsmenn skólans upplifi tækifæri til fjölbreyttra kennsluhátta
útivið.
Í skólanum er lagt áherslu á góða samvinnu allra þeirra sem starfa í skólanum. Námsumhverfi nemenda
endurspeglast meðal annars í ánægðu og samstilltu starfsfólki.
Störfin henta jafnt körlum sem konum.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir Elfa Birkisdóttir skólastjóri í síma: 480-3030
eða í gegnum tölvupóst elfa@blaskogaskoli.is