Bláskógaskokk HSK 2007
Fréttir
27.06.2007
Bláskógaskokk HSK
30. júní 2007.
Hið árlega Bláskógaskokk HSK verður haldið laugardaginn 30. júní nk. og hefst kl. 11:00. Hlaupið verður frá Gjábakka, austan Þingvallavatns, eftir Gjábakkavegi og endað á íþróttavellinum á Laugarvatni.
Vegalengdir 5 km og 10 mílur (16,09 km) með tímatöku.
Flokkaskipting bæði kyn:
10 mílur: 16 ára og yngri, 17 - 39 ára, 40 - 49 ára, 50 ára og eldri.
5 km: 16 ára og yngri og 17 ára og eldri.
Skráningargjald er kr. 1.200,- fyrir 17 ára og eldri en kr. 600,- fyrir 16 ára og yngri. Innifalið í gladi er rútuferð frá Laugarvatni að rásmarki og aðgangur að sundlauginni á Laugarvatni (gegn framvísun keppnisnúmers).
Hægt er að skrá sig á hlaupasíðunni www.hlaup.is og greiða skráningargjaldið með kreditkorti. Forskráning á www.hlaup.is lýkur föstudaginn 29. júní kl. 21:00. Skráning og afhending keppnisnúmera er við íþróttahúsið á Laugarvatni á keppnisdegi frá kl. 9:00 til 10:00. Þaðan verður ekið með rútu á Gjábakka kl. 10:00. Reynt verður að takmarka bílaumferð um veginn á meðan á hlaupi stendur.
Allir sem ljúka hlaupi fá verðlaunapening. Sigurvegarar í hverjum flokki fá sérstakan eignargrip og sérverðlaun eru fyrir fyrsta kal og fyrstu konu í 16 km. Verðlaunaafhending verður við sundlaugina á Laugarvatni strax eftir hlaup.
Nánari upplýsinar veita skrifstofa HSK síma: 482-1189 og
Ingvar Garðarsson í síma: 482-2730 eða gsm: 698-5730.