Bláskógabyggð - tilboð í ræstingu og hreingerningu leikskóla

Fréttir 08.05.2023
Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í ræstingu og hreingerningu leikskólans Álfaborgar í Reykholti. Um er að ræða tæplega 500 fermetra byggingu. Verkefnið felst í ræstingu og hreingerningu leikskólans. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 9. maí 2023. Þeir sem óska eftir að fá gögnin afhent sendi tölvupóst á asta@blaskogabyggd.is eða hafi samband í síma 480 3000. Tilboðum skal skilað til Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti, fyrir kl. 10 fimmtudaginn 25. maí 2023, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim sem þess óska.