Bláskógabyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra leikskólans Álfaborgar Reykholti

Fréttir 28.04.2015
Sveitarfélagið Bláskógabyggð er staðsett í uppsveitum Árnessýslu og nær yfir Biskupstungur, Laugardal og Þingvallasveit. Það er framsækið sveitarfélag í örum vexti þar sem búa tæplega 1000 íbúar. Þrír þéttbýliskjarnar eru í sveitarfélaginu, þ.e. Laugarás, Laugarvatn og Reykholt.  Leikskólinn Álfaborg er staðsettur í Reykholti, sem er í 100 km fjarlægð frá Reykjavík.  Skólastjóri leikskólans Álfaborgar Reykholti, Bláskógabyggð Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir starf leikskólastjóra Álfaborgar, Reykholti, laust til umsóknar. Álfaborg er tveggja deilda leikskóli með um 30 börn og 10 starfsmenn í mismunandi starfshlutföllum. Í Álfaborg er metnaðarfullt skólastarf, gott starfsumhverfi og góð samvinna starfsfólks, barna, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans. Aðalverkefni leikskólastjóra er að bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri og veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og skólaþróunar. Áhersla er á markvissa samfellu og tengsl milli skólastiga og öflugt samstarf heimila og skóla, sem og milli allra skólanna í sveitarfélaginu. Óskað er eftir umsækjanda með leikskólakennaramenntun og stjórnunarreynslu.  Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða skólaþróunar. Mikilvægt er að umsækjandi hafi góða stjórnunar- og samskiptahæfileika og áhuga á skólaþróun. Umsóknarfrestur er til 17. maí n.k. Umsóknir berist til Valtýs Valtýssonar, sveitarstjóra Bláskógabyggðar, Aratungu, 801 Selfoss, netfang valtyr@blaskogabyggd.is, sem veitir nánari upplýsingar í síma 480-3000.