Bláskógabyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra

Fréttir 15.04.2017
Í Bláskógaskóla, Reykholti eru rúmlega 70 nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og gott samstarf skóla við heimili. Að undanförnu hefur verið unnið markvisst að þróun námsmats og teymiskennslu. Náið samstarf er við leikskólann Álfaborg og Bláskógaskóla, Laugarvatni. Leitað er að einstaklingi sem hefur metnað fyrir menntun barna og unglinga, býr yfir þekkingu og reynslu af skólastarfi, og getur veitt faglega forystu til framtíðar þar sem tekið er tillit til mismundi þarfa, áhuga og getu nemenda. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2017. Meginverkefni skólastjóra eru að:  
  • veita skólanum faglega forystu og móta stefnu hans í samvinnu við starfsfólk, nemendur, foreldra og íbúa í samræmi við lög um leik- og grunnskóla, aðalnámskrá og skólastefnu Bláskógabyggðar.
  • stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
  • bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun.
  • bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins, innan og utan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
·         Leyfisbréf sem grunnskólakennari og kennslureynsla í grunnskóla. ·         Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar. ·         Viðbótarmenntun í stjórnun menntastofnana æskileg eða nám í kennslufræði á meistarastigi. ·         Góðir skipulagshæfileikar og færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun. ·         Lipurð og hæfni í samskiptum. ·         Áhugi á metnaðarfullu skólastarfi og skýr framtíðarsýn. ·         Vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á þróunarstarfi.   Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Bláskógabyggð mun aðstoða við öflun húsnæðis ef þörf er á.   Í umsókn skal greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur máli skipta og varpað getur ljósi á færni hans til að sinna stöðu skólastjóra. Umsókninni skal fylgja samantekt þar sem fram koma hugmyndir umsækjanda um skólastarfið og þróun þess. Sakavottorð skal fylgja umsókn og ábendingar um meðmælendur.   Umsóknir berist til Valtýs Valtýssonar, sveitarstjóra með rafrænum hætti á netfangið valtyr@blaskogabyggd.is fyrir 29. apríl næstkomandi. Sveitarstjóri veitir nánari upplýsingar í s. 480-3000 eða 897 0890.