Bláskógabyggð auglýsir Hverabraut 16-18 til sölu

Fréttir 18.04.2024

Bláskógabyggð auglýsir fasteignina Hverabraut 16-18 á Laugarvatni til sölu. Um er að ræða einstakt tækifæri í atvinnuuppbyggingu á Laugarvatni. Hverabraut 16-18 er 1.394,1 fm bygging sem áður var nýtt sem heimavist. Hægt er að nýta núverandi byggingarheimild til stækkunar um 422 fm, auk þess sem aðliggjandi lóðir gætu tengst frekari uppbyggingu svæðisins. 

Tilboði í bygginguna og byggingarrétt ásamt umbeðnum upplýsingum skal skila rafrænt í útboðsjerfinu Ajour, tengill er hér: 

Ajour Tilboð - Hverabraut 16-18

Opnun tilboða verður með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn.  Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt. 

Niðurstaða útboðs verður birt á vef Bláskógabyggðar.