Bjarnatorg og Bjarkartorg

Fréttir 29.08.2017
Hringtorgunum í Reykholti hefur nú verið gefin nöfn. Nöfnin voru kunngjörð á hátíðinni Tvær úr Tungunum sem fram fór í Reykholti 19. ágúst sl. Efra hringtorgið fékk nafnið Bjarkartorg en það stendur m.a við Bjarkarbraut. Neðra hringtorgið fékk nafnið Bjarnatorg en það stendur við Bjarnabúð þar sem Bjarni Kristinsson er kaupmaðurinn. Auglýst var eftir ábendingum að nöfnum og er niðurstaðan í samræmi við innsendar tillögur. Skiltin eru úr heimabyggð en þau eru úr greni úr Haukadalsskógi og sá Óskar Boundy í Reykholti um að skera þau út. Á mynd sem fylgir fréttinni stendur Óskar við skiltið á Bjarnatorgi.