Baðstofukvöld í Aratungu 29. október
Fréttir
27.10.2010
Baðstofukvöld í Aratungu 29. okt.
Lionsklúbburinn Geysir heldur sína haustskemmtun undir heitinu
? sagna og kvæðamenn ?
Við höfum fengið til okkar nokkra valinkunna sagnameistara sem allir vita
að góð saga má aldrei gjalda sannleikans.
Þeir sem leiða sagnaþáttinn verða Hallgrímur Guðfinnsson í Miðhúsum, Kristinn Ólason í Skálholti, Hilmar Einarsson á Laugarvatni, Einar Sæmundsen í Reykholti, Kristján Valur Ingólfsson fyrrverandi rektor í Skálholti og Bjarni Harðarson Selfossi, sem einnig verður kynnir kvöldsins.
Rými verður fyrir fleiri sem hafa ?góðar sögur? í kollinum.
Félagar úr kvæðamannafélaginu Árgali koma til okkar og kynna sig og kveða stemmur .
Við opnum húsið kl. 20.30 og dagskráin hefst kl. 21.
Kaffi verður á könnunni og léttar veitingar seldar.
Aðgangseyrir er 2000 krónur.
Lionsklúbburinn Geysir hefur í gegnum tíðina stundað fjáröflun með það að markmiði að leggja góðum málum í okkar samfélagi lið. Í þessu tilviki verður öllum ágóða varið til að kaupa nýtt og fullkomið eyrnaskoðunartæki fyrir heilsugæslustöðina í Laugarási.
Sjáumst sem flest og njótum saman sagna og kvæðalistar.