Auglýst eftir rekstraraðila

Fréttir 16.03.2017
Auglýst er eftir rekstraraðila/-aðilum til að hafa umsjón með og annast rekstur golfvallar og skála Golfklúbbsins Dalbúa í Miðdal við Laugarvatn sumarið 2017.  Golfklúbburinn Dalbúi var stofnaður 1989 og rekur 9 holu golfvöll í Miðdal, sem er aðeins innan við Laugarvatn. Góð vélageymsla og vinnuaðstaða er fyrir hendi og öll helstu tæki sem þarf til rekstrarins. Við völlinn er golfskáli þar sem er veitingasala og almenn þjónusta við gesti vallarins. Umhverfis skálann er stór pallur sem hægt er að tjalda yfir fyrir stærri hópa.  Hlutverk rekstraraðila er að annast rekstur golfvallarins og skálans sem sjálfstæður rekstraraðili /sjálfstæðir rekstraraðilar í góðri samvinnu við stjórn og viðeigandi nefndir klúbbsins.  Þeir sem hafa áhuga á að taka að sér umræddan rekstur eru hvattir til að hafa samband við formann golfklúbbs Dalbúa, Pál Ólafsson (pallolafsson@simnet.is eða síma 856-2918) eða varaformann, Hafstein Daníelsson (hd@tskoli.is eða í síma 663-6300) fyrir 31. mars 2017. Nánari upplýsingar um golfklúbbinn Dalbúa er að finna á heimasíðu klúbbsins, www.dalbui.is Stjórn Golfklúbbsins Dalbúa     Smellið hér fyrir neðan til að nálgast auglýsingu Dalbui-rekstraradili_oskast