Auglýst eftir áhugasömum aðilum vegna lagningar ljósleiðara í Laugarási

Fréttir 08.08.2024

Bláskógabyggð auglýsir eftir aðilum sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratenginu fyrir heimili og fyrirtæki í Laugarási í Bláskógabyggð á árunum 2024-2026 eða hafa áhuga á að tengja þau 46 staðföng í Laugarási sem Fjarskiptasjóður metur styrkhæf skv. skilmálum sjóðsins frá 2. júlí 2024 gegn því að þiggja þann styrk sem Fjarskiptasjóður býður.

Þau fjarskiptafyrirtæki sem hafa staðfest áform um slíkt eða áhuga á að tengja viðkomandi staðföng skv. ofangreindum forsendum eru beðin um að senda upplýsingar þar um á netfangið blaskogabyggd@blaskogabyggd.is fyrir 20. ágúst 2024.

Bláskógabyggð