Auglýsing um skipulagsmál í uppsveitum Árnessýslu

Fréttir 20.02.2008
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunnamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi Samkvæmt 1.mgr 21.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar: 1 Höfði í Bláskógabyggð. Frístundabyggð. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Höfða. Í breytingunni felst að tvö svæði eru skilgreind fyrir frístundabyggð í stað landbúnaðarsvæðis. Annars vegar um 44 ha svæði nyrst á jörðinni og hins vegar um 100 ha svæði suðvestan við bæinn Höfða. Deiliskipulag fyrir nyrðra svæðið er auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni. 2 Miðengi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Íbúðarsvæði. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2002-2012 í landi Miðengis. Í breytingunni felst að um 3 ha svæði við Bústjórabraut, aðkomuvegi að frístundabyggð í landi Miðengis, verður að íbúðarsvæði í stað landbúnaðarsvæðis. Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er auglýst samhliða. 3 Þóroddstaðir í Grímsnes- og Grafningshreppi. Frístundabyggð. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2002-2012 í landi Þóroddstaða. Í breytingunni felst að núverandi frístundabyggðarsvæði í á jörðinni sem liggur upp að Stangarlæk, austan Laugarvatnsvegar, stækkar úr 25 ha í 70 ha. Samkvæmt 1.mgr. 25.gr.  skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur: 4 Höfði í Bláskógabyggð. Frístundabyggð. Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar á 32 ha spildu úr landi Höfða (Höfðalönd). Í tillögunni er gert  ráð fyrir 31 lóð á bilinu 0,6 til 1,0 ha fyrir 50-200 fm frístundahús með 6 m mænishæð frá jörðu og allt að 25 fm aukahús.Hámarks nýtingarhlutfall er 0.03. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi svæðisins er auglýst samhliða. 5 Miðengi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Íbúðarsvæði. Tillaga að deiliskipulagi 2 ha íbúðarsvæðis í landi Miðengis. Svæðið liggur við Bústjórabraut sem liggur til suðvesturs frá aðkomuvegi að bænum Miðengi. Á svæðinu er gert ráð fyrir tíu 1.024 fm íbúðarhúsalóðum þar sem heimilt verður að reisa íbúðarhús sem eru 100-300 fm að grunnfleti.. Husin skulu vera á einni hæð en heimilt er að vera með svefnloft eða kjallara þar sem aðstæður leyfa. Hámarks mænishæð er 6 m frá jörðu. Breyting á aðalskipulagi svæðisins er auglýst samhliða. Á umræddu svæði er í gildi deiliskipulag fyrir tvær íbúðarhúsalóðir en með gildistöku nýs skipulags mun það falla úr gildi. 6 Þóroddstaðir í Grímsnes- og Grafningshreppi. Frístundabyggð. Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Þóroddstaða í Grímsnesi. Skipulagssvæðið er um 28 ha að stærð og er syðst í landi Þóroddstaða og kemur í framhaldi af núverandi frístundabyggð meðfram læk á landamörkum við Svínavatn. Gert er ráð fyrir 35 frístundahúsalóðum á bilinu 5.010 til 11.135 fm þar sem heimilt verður að reisa frístundahús og aukahús (40 fm) með nýtingarhlutfall allt að 0.03. Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi svæðisins. 7 Villingavatn Í Grímsnes- og Grafningshreppi. Einbúi, frístundabyggð. Tillaga að deiliskipulagi þriggja frístundahúsalóða í landi Villingavatns í Grafningi. Lóðirnar eru innan eldra frístundabyggðasvæðis en ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag á svæðinu. Tvær lóðirnar eru 0,5 ha og ein er 0,61 ha. Lóðirnar kallast Einbúi 1, 2 og 3 og er þegar til staðar hús á lóð nr. 2. Heimilt verður að reisa 50 ? 200 fm hús á lóðunum auk allt að 40 fm aukhúss. Nýtingarhlutfall má þó að hámarki veri 0.03. 8 Efra-Sel í Hrunamannahreppi. Svanabyggð, frístundabyggð. Tillaga að endurskoðun deiliskipulags frístundabyggðarinnar Svanabyggð í landi Efra-Sels. Ekki er um fjölgun lóða að ræða heldur hafa allar núverandi lóðir, 26 talsins, verið hnitsettar upp á nýtt. Þá er gert ráð fyrir breytingum á skilmálum svæðisins þannig að heimilt verði að reisa allt að 110 fm hús á hverri lóð til samræmis við skilmála í Kjóabyggð og Álftabyggð í landi Efra-Sels. Samkvæmt 1.mgr. 26.gr.  skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar: 9 Iða II í Bláskógabyggð. Frístundabyggð, skilmálabreyting. Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar við Vörðufell í landi Iðu II. Í breytingunni felst að heimilt verður að reisa allt að 150 fm frístundahús á hverri lóð og allt að 30 fm aukahús. Nýtingarhlutfall lóðar má þó ekki vera hærra en 0.03. 10 Úthlíð í Bláskógabyggð. Rjúpnabraut 5-7 Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Úthlíðar. Í breytingunni felst að afmörkun lóða 5 og 7 við Rjúpnabraut breytast. Lóð nr. 5 stækkar til norðurs og vesturs á meðan lóð nr. 7 stækkar til vesturs en minnkar að sunnaverðu. 11 Þingvallaþjóðgarður í Bláskógabyggð. Hakið, þjónustumiðstöð . Auglýst að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Hakið í Þingvallasveit, ásamt meðfylgjandi umhverfisskýrslu. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir stækkun núverandi  þjónustumiðstöðvar, byggingarreit fyrir nýrri snyrtiaðstöðu auk þess sem bílastæði stækka. 12 Ásgarður í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ásborgir, íbúðarsvæði. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðisins Ásborgir í landi Ásgarðs. Í tillögunni felst að gert er ráð fyrir að lýsing meðfram vegi verði ekki hærri en 4 m í stað 1,5 m. Þá er ákvæði um að takmarka skuli ljósmengun með því að beina lýsingu niður. 13 Göltur í Grímsnes- og Grafningshreppi. Frístundabyggð. Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags 2,6 ha frístundahúsalóðar í landi Galtar í Grímsnesi. Samkvæmt gildandi skipulagi er heimilt að reisa 280 fm frístundahús á einni hæð auk bátaskýlis og bílskúrs. Í breytingunni felst breyting á stærð frístundahússins á þann veg að heimilt verði að reisa allt að 450 fm hús á tveimur hæðum. 14 Kiðjaberg í Grímsnes og Grafningshrepps. Frístundabyggð. Auglýst að nýju tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags í Kiðjabergi, orlofs- og sumarhúsasvæðis Meistarafélags húsasmiða. Í tillögunni felst að gerð er breyting á skilmálum er varða stærð og útlit húsa. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að 350 fm frístundahús að grunnfleti og allt að 40 fm aukahús á hverri lóð, en nýtingarhlutfall lóðar má þó ekki fara upp fyrir 0.03. Einnig er gert ráð fyrir breytingum er varða meðal annars hæðir húsa, mænishæð, þakhalla og útlit. 15 Sólheimar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sólheima í Grímsnesi. Gerð er breyting á fjölda og gerð íbúðarhúsa við Upphæðir auk þess sem lega aðkomuvegar breytist. Þá er gert ráð fyrir nýjum íbúðarhúsum austan Sólheimavegar í stað þjónustubygginga, auk vinnubúða. 16 Syðra-Langholt IV í Hrunamannahreppis. Frístundabyggðin Holtabyggð. Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðarinnar Holtabyggð úr landi Syðra-Langholts IV. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að reisa allt að 120 fm frístundahús á hverri lóð en með breytingunni er gert ráð fyrir húsum með nýtingarhlutall allt að 0.03. Að öðru leyti breytast skilmálar svæðisins ekki. 17 Hagi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Undraland, frístundabyggð. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Haga. Í tillögunni felst að lóðinni Undraland er skipt í tvær lóðir, önnur verður um 0,6 ha og hin 8,1 ha. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er lóðin Undraland 6,6 en skv. landskiptagjörð frá 1999 8,8 ha og er stærð lóðarinnar lagfærð í samræmi við það. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að reisa hús með nýtingarhlutfall 0.03 eða að hámarki 300 fm. Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags  og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 21. febrúar til 20. mars 2008. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á vefslóðinni http://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/ Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 3. apríl 2008 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu