Auglýsing um skipulagsmál
Fréttir
21.05.2014
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar varðandi eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
- Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 á spildu úr landi Álfsstaða. Landbúnaðarsvæði í stað frístundabyggðar.
- Breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Syðri-Reykja. Nýtt efnistökusvæði.
- Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Stækkun Búrfellsvirkjunar.
- Breyting á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 í landi Lækjarhvamms. Smávirkjun.
- Breyting á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 í landi Austureyjar 1. Svæði fyrir verslun- og þjónustu í stað íbúðarsvæðis.
- Deiliskipulag smávirkjunar fyrir fjarskiptastöð Neyðarlínunnar við Bláfell í Bláskógabyggð.
- Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli við Brúará úr landi Efri-Reykja í Bláskógabyggð.
- Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar á spildu sem kallast Engjateigur úr Álfsstöðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Íbúðarhús, hesthús og gistihús.
- Breyting á skilmálum frístundabyggðar í landi Efri-Reykja í Bláskógabyggð.
- Breyting á deiliskipulagi Skógræktar ríkisins að Skriðufelli í Þjórsárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Skilmálar hjólhýsasvæðis.
- Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Miðengis í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fjórar nýjar íbúðarhúsalóðir.